Sólspor

Sjálfbærni í orku

Sólspor – Sjálfbær orka fyrir heimili, bústaði og fyrirtæki
Við hjá Sólspor trúum á kraft sólarinnar til að skapa hreina og vistvæna framtíð.

Við flytjum inn, seljum og setjum upp sjálfbærar orkulausnir sem gera þér kleift að draga úr raforkukostnaði og minnka kolefnisspor þitt.

Með sérfræðiráðgjöf og nýjustu tækni í sólarorku og rafhlöðugeymslum hjálpum við þér að nýta orkuna betur – allan sólarhringinn.

Hvort sem þú vilt sjálfbært heimili, sjálfbæran sumarbústað eða vistvænt fyrirtæki, þá finnum við réttu lausnina fyrir þig.

Taktu skrefið í átt að grænni orku með Sólspor – orkan sem skiptir máli!

Um okkur

Við sérhæfum okkur í virkjun grænnar orku, sólar- og vindorku. Markmið okkar er að hjálpa heimilum, fyrirtækjum og stofnunum að ná sjálfbærni í raforku.

Sólspor er samstarfsaðili Roofit á Íslandi

Samþætt stálþak með innbyggðum sólarsellum. Engar sýnilegar festingar, einföld uppsetning og frábær orkuvinnsla – tilvalið fyrir nýbyggingar og þegar gamla þakið þarfnast endurnýjunar.

Sjá meira->

Sjá frétt á RÚV->